
1. Til þess að tengjast kerfinu þurfa kylfingar að vera staðsettir í Básum en til að flýta fyrir notkun í fyrsta sinn er hægt að ná í TrackMan Range appið - hægt er að nálgast appið bæði í App Store og Play Store í símanum.
2. Þegar mætt er í Bása tengið símann við TrackMan Wi-Fi og sláið inn lykilorð sem uppgefið er á staðnum.
3. Opnið app og fylgið leiðbeiningum á skjá.

Algengar spurningar
Hvað er TrackMan Range?
Það er frítt app sem gerir þér kleift að æfa golf með markvissum hætti. Að auki getur þú fylgst með framförum þínum yfir lengra tímabil - allt í gegnum símann.
Hvernig virkar appið?
TrackMan Range veitir lykilupplýsingar fyrir hvert slegið högg. Nákvæm lengd á bolta á flugi, hraði og ferill boltans er sýndur í rauntíma á spjaldtölvu eða snjallsíma kylfings á einfaldan og skýran hátt.
Geymir appið upplýsingar um höggin mín?
Já, en fyrst þarftu að skrá þig inn. TrackMan Range byggir sjálfkrafa upp stöðu þína, heldur utan um árangur og gefur þér skýrslu eftir hverja æfingu.