19.11.2019

Vetrarþjálfun hjá Arnari Snæ - ný námskeið hefjast í desember

Arnar Snær Hákonarson býður kylfingum upp á vetrarþjálfun í golfi, fyrstu námskeið byrjuðu nú í nóvember og eru þegar komin ný á dagskrá í desember. Markmiðið með þjálfuninni er að ná betri tökum á golfsveifunni og koma vel undirbúin í golfsumarið 2020. Æfingarnar fara fram í Básum, Grafarholti og innanhús á Korpúlfsstöðum. Hvert námskeið varir í 10 vikur og hefjast næstu námskeið 2. desember  

Eftirfarandi atriði verða tekinn fyrir :

  • Lengri teighögg
  • Færri pútt þar sem sérstaklega verður farið yfir lengdarstjórnun og vanaferli
  • Boltaflug hvernig sláum við boltann frá hægri til vinstri(draw) og vinstri til hægri(fade)
  • Aukin högglengd meiri kylfuhraði
  • Kylfuval í vippum há vipp og vipp og rúll
  • Mismunandi tækni í vippum fyrir mismunandi aðstæður
  • Markmiðsetning fyrir kylfinga á öllum getu stigum
  • Leikskipulag og markvissar æfingar til að vinna eftir

Vetrarþjálfun er fyrir alla kylfinga í öllum klúbbum hvort sem þú ert byrjandi eða lengra kominn þá er þetta besta leiðinn til að ná betri tökum á leiknum.

Hópur 1 - Mánudagar 16:15 – 17:00 og laugardagar 08:00 – 09:00 (Fyrsti tími 2.des)
Hópur 2 - Mánudagar 20:00 – 20:45 og laugardagar 08:00 – 09:00 (Fyrsti tími 2.des)
Hópur 3 - Þriðjudagar 16:15 – 17:00 og laugardagar 14:00 – 15:00 (Fyrsti tími 3.des)
Hópur 4 - Þriðjudagar 19:15 – 20:00 og laugardagar 14:00 – 15:00 (Fyrsti tími 3.des)

Verð 15.000 kr

Ef tveir eða fleiri skrá sig saman þá er 20% afsláttur
*æfingarboltar ekki innifaldir í verði

Skráning fer fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is 

Til baka í fréttalista