26.04.2019

Sumarið er komið – Golfnámskeið í maí

Nú eru flestir vellir að opna og golfsumarið að fara á fulla ferð. Hvort sem þú ert byrjandi eða lengra kominn er alltaf tilvalið að skella sér á golfnámskeið og rífa sig í gang. Eftirfarandi námskeið verða í boði hjá Arnari Snæ í maí:

Golfnámskeið fyrir lengri komna – Fyrir þá sem vilja koma vel undirbúnir í sumarið
Almennt námskeið – Skemmtilegt námskeið fyrir alla
Byrjendanámskeið 1 – Fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref 
Byrjendanámskeið 2 – Fyrir þá sem hafa fiktað smá í sportinu áður  
Framhaldsnámskeið – Fyrir þá sem vilja koma leiknum sínum af byrjenda stiginu 
Helgarnámskeið – Alvöru keyrsla! Alvöru námskeið

Hámarksfjöldi í hverjum hóp eru sex kylfingar. Kennari er Arnar Snær Hákonarsson PGA golfkennari og fara skráningar fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is 

Nánari upplýsingar um námskeiðin má sjá hér fyrir neðan. 

Golfnámskeið fyrir lengri komna
Tilvalið námskeið fyrir kylfinga sem eru með 10-28 í forgjöf og vilja koma vel undirbúnir inn í golfsumarið. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 18:00-19:00 á þriðjudögum og fimmtudögum. Námskeiðið hefst fimmtudaginn 2.maí og verður kennt á eftir eftirtöldum dagsetningum:

2.maí:    Básar – Járnahögg
7.maí:    Básar – Teighögg
9.maí:    Básar – Brautartré/Hybrid
14.maí:  Básar – Vipp
16.maí:  Básar – Pútt

Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)

Almennt námskeið
Frábært námskeið fyrir alla kylfinga sem vilja ná betri tökum á golfleiknum þar sem sértaklega verður farið í teighögg og vipp. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 19:00-20:00 á þriðjudögum og fimmtudögum. Námskeiðið hefst fimmtudaginn 2.maí og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:

2.maí:    Básar – Sveifla
7.maí:    Básar – Lengri teighögg
9.maí:    Básar – Golfsveiflan fínpússuð
14.maí:  Básar – Vipp
16.maí:  Básar – Sveifla/teighögg

Verð 15.000 kr.  (Boltar ekki innifaldir)

Byrjendanámskeið í golfi: Byrjendastig 1
Námskeiðið er kennt á mánudögum og miðvikudögum kl 17:00-18:00 og á laugardögum frá 09:00-10:00. Kennt verður á eftirtöldum dagsetningum og hefst námskeiðið mánudaginn 6.maí í Básum, Grafarholti

6.maí:    Básar – Golfsveiflan
8.maí:    Básar – Golfsveiflan
11.maí:  Básar – Pútt/Vipp
13.maí:  Básar – Golfsveiflan
15.maí:  Básar – Pútt/Glompa

Verð 15.000 kr.  (Boltar ekki innifaldir)

Byrjendanámskeið í golfi: Byrjendastig 2
Námskeiðið er kennt á mánudögum og miðvikudögum kl 18:00-19:00 og á laugardögum frá 10:00-11:00. Kennt verður á eftirtöldum dagsetningum og hefst námskeiðið miðvikudaginn 3.maí í Básum, Grafarholti

6.maí:    Básar – Golfsveiflan
8.maí:    Básar – Golfsveiflan
11.maí:  Básar – Pútt/Vipp
13.maí:  Básar – Teighögg
15.maí:  Básar – Pútt/Glompa

Verð 15.000 kr.  (Boltar ekki innifaldir)

Framhaldsnámskeið
Frábært námskeið fyrir kylfinga sem vilja koma leiknum af byrjenda stiginu. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 19:00-20:00 á þriðjudögum og fimmtudögum og 11:00-12:00 á laugardeginum. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 7.maí og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:

7.maí:   Básar  
9.maí:   Básar 
11.maí: Básar 
14.maí: Básar
16.maí: Básar

Verð 15.000 kr.  (Boltar ekki innifaldir)


Helgarnámskeið – Stuttaspil og sveifla
Á laugardeginum verður farið í allt sem við kemur stuttaspilinu farið verður í grunnatriði í hverjum hluta og æfingar sem skila árangri og á sunnudeginum farið yfir sveifluna og tæknina á bakvið hana. Námskeiðið fjórir tímar (4x 60 mín) og verður kennt á laugardeginum og sunnudeginum frá klukkan kl. 12:00-14:00. Námskeiðið er laugardaginn 11.maí og sunnudaginn 12.maí og verður í Básum, Grafarholti:

Verð 12.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)

Til baka í fréttalista