Frábær golfnámskeið á dagskrá í júlí

Ný og frábær golfnámskeið á dagskrá hjá Arnari Snæ í júlí. Hvort sem þú ert byrjandi eða lengra kominn er alltaf rétti tíminn til að læra eitthvað nýtt og ná betri tökum á sveiflunni. Eftirfarandi námskeið verða í boði í júlí:
- Almennt námskeið – Skemmtilegt námskeið fyrir alla
- Byrjendanámskeið – Fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref
- Byrjendanámskeið (Helgarnámskeið) – Fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref
- Framhaldsnámskeið – Fyrir þá sem vilja koma leiknum sínum af byrjenda stiginu
- Helgarnámskeið – Alvöru keyrsla! Alvöru námskeið
Hámarksfjöldi í hverjum hóp eru sex kylfingar. Kennari er Arnar Snær Hákonarsson PGA golfkennari og fara skráningar fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is
Nánari upplýsingar um námskeiðin má sjá hér fyrir neðan:
Almennt námskeið
Frábært námskeið fyrir alla kylfinga sem vilja ná betri tökum á golfleiknum þar sem sértaklega verður farið í teighögg og vipp. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 19:00-20:00 á mánudögum og miðvikudögum og klukkan 10:00-11:00 á laugardögum. Námskeiðið hefst mánudaginn 15.júlí og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:
15.júlí: Básar – Sveifla
17.júlí: Básar – Lengri teighögg
20.júlí: Básar – Stuttaspil
22.júlí: Básar – Lengri kylfur
24.júlí: Básar – Sveifla/teighögg
Verð 18.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Byrjendanámskeið í golfi
Námskeiðið er kennt á mánudögum og miðvikudögum kl 18:00-19:00 og á laugardögum frá 09:00-10:00. Kennt verður á eftirtöldum dagsetningum og hefst námskeiðið mánudaginn 15.júlí í Básum, Grafarholti
15.júlí: Básar
17.júlí: Básar
20.júlí: Básar
22.júlí: Básar
24.júlí: Básar
Verð 18.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Byrjendanámskeið í golfi (Helgarnámskeið)
Frábært námskeið fyrir byrjendur sem vilja læra grunnatriðin í golfi þar sem farið verður alla þætti í sportinu. Á laugardeginum verður farið í allt sem við kemur stuttaspilinu farið verður í grunnatriði í hverjum hluta á sunnudeginum verður farið yfir sveifluna og tæknina á bakvið hana. Námskeiðið fjórir tímar (4x 60 mín) og verður kennt á laugardeginum og sunnudeginum frá klukkan kl. 12:00-14:00. Námskeiðið er laugardaginn 20.júlí og sunnudaginn 21.júlí og verður í Básum, Grafarholti:
Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Framhaldsnámskeið
Frábært námskeið fyrir kylfinga sem vilja koma leiknum af byrjenda stiginu. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 20:00-21:00 á mánudögum og miðvikudögum og laugardögum frá 11:00 – 12:00. Námskeiðið hefst mánudaginn 15.júlí og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:
15. júlí: Básar – Sveifla
17. júlí: Básar – Lengri teighögg
20. júlí: Básar – Stuttaspil
22. júlí: Básar – Lengri kylfur
24. júlí: Básar – Sveifla/teighögg
Verð 18.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Helgarnámskeið – Stuttaspil og sveifla
Á laugardeginum verður farið í allt sem við kemur stuttaspilinu farið verður í grunnatriði í hverjum hluta og æfingar sem skila árangri og á sunnudeginum farið yfir sveifluna og tæknina á bakvið hana. Námskeiðið fjórir tímar (4x 60 mín) og verður kennt á laugardeginum og sunnudeginum frá klukkan kl. 10:00-12:00. Námskeiðið er laugardaginn 20.júlí og sunnudaginn 21.júlí og verður í Básum, Grafarholti.
Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)