Æfingasvæði Bása opnar með takmörkunum frá og með 27. mars
Túlkun viðbragðshóps GSÍ á reglugerðinni sem tók gildi 25. mars heimilar golfklúbbum og æfingasvæðum opnun með ákveðnum takmörkunum og verður æfingasvæði Bása opið frá og með laugardegi 27. mars samkvæmt neðangreindu.
1. og 2. hæð verða eingöngu opnar
Hámarksfjöldi á hvorri hæð er 10 manns
Kylfingar þurfa að skrá sig á blað við boltavél þegar mætt er með upplýsingum um nafn og kennitölu, við brottför skal einnig skrá tíma sem varið er á æfingasvæði
Kylfingar skulu virða 2ja metra regluna
Gætt verður að sameiginlegum snertiflötum með þar til gerðum búnaði (NanoSeptic)
Gæta skal að almennum sóttvörnum
Páskar eru framundan og að þeim loknum styttist óðum í vorið. Þess vegna er mikilvægt fyrir okkur að vinna saman og fara eftir þeim reglum sem settar eru ef starfsemi komandi golftímabils á að fara af stað á réttum tíma. Við biðjum ykkur öll að fara varlega, gæta vel að persónulegu hreinlæti og almennum sóttvörnum.
Höldum áfram og gerum þetta saman! Starfsfólk Bása