Leiðbeiningar
1. Aðalvalmynd
Veljið PLAY COURSES í TrackMan Range appinu til þess að leika golf í Básum
2. bás valinn
Veljið númer á þeim bás sem leikið er úr.
3. leikmenn skráðir
- Leikmenn eru skráðir inn. Hægt er að skrá 1-5 leikmenn.
- Hægt er að velja lit fyrir leikmann, skrá forgjöf og velja teig.
- Liturinn skiptir ekki máli nema leikinn sé liðakeppni.
- Hægt er að velja um scramble og betri bolta í liðakeppni.
4. Völlur valinn
Hér er völlur valinn. Í boði eru 4 vellir hverju sinni.
5. Stillingar
Áður en leikur hefst er hægt að stilla nokkra þætti með því að smella á "Settings" hnapp uppi í hægra horni á skjánum.
6. Stillingar valmynd
Eftirfarandi valmöguleikar eru til staðar í uppsetningu leiks (Game Settings)
- Pútt eru gefin sem 1 pútt þegar bolti er kominn inn fyrir Gimme Distance. Hægt er að velja þessa fjarlægð frá holu frá 1 – 6 metrum.
- Mælt er með Contrast Mode = High þegar leikið er utandyra.
- Ball Type býður upp á val milli þess að hver kylfingur leiki sínum bolta (Play Own Ball), eða liðakeppni, annað hvort Betri bolta (Better Ball) eða Scramble. Ef leikmenn leika betri bolta eða scramble þarf að velja sama lit á þeim leikmönnum sem leika saman í liði.
7. Leikupplýsingar (Course info)
Hér geta kylfingar séð upplýsingar um þann völl sem leikið er á, ekki er hægt að stilla þessa þætti:
- Hraði á flötum
- Tími dagsins
- Pinnastaðsetningar
- Ástand flata
- Ástand brauta
8. Hefja leik
Þegar búið er að fara yfir stillingar er hægt að hefja leik með því að smella á "Start game" efst í hægra horninu á skjánum.
9. Velja mið
Leikmenn þurfa að velja mið á miðjan skjáinn. Það er gert með því að velja flagg á æfingasvæðinu sem passar best fyrir högg beint út úr viðkomandi bás. Flagg T9 er sjálfgefin stilling.
10. Breyta miði
Hér er búið að velja annað mið. Kylfingur slær beint út úr Básnum og velur að skotmörk T1 eða T5 passi best fyrir höggstefnu beint út úr básnum. Mið er staðfest með því að velja DONE. Hægt er að breyta um mið hvenær sem er á meðan á leik stendur.
Völlurinn er nú tilbúinn til leiks.
11. Sjónarhorn frá 1. teig
Hægt er að breyta miði með því að færa hringinn á myndinni sem birtist til hægri á skjánum.
12. Upplýsingar um högg
- Upplýsingar um boltaflug, högglengd, hæð, boltahraða, höggstefna í gráðum, bæði upp og til hliðar birtast á skjá.
- Hægt er að endursýna höggið, slá aftur gegn vítishöggi, taka upp bolta eða fá Mulligan.
- Neðst á skjá kemur fram hver eigi næsta högg og hve langt viðkomandi eigi eftir.
13. Leik lokið á holu
Ekkert er púttað þegar golf er leikið í golfhermi.
14. Leik lýkur
Leik lýkur á holu þegar allir leikmenn er komnir innan við 18 metra frá holu.
15. Skorkort
- Með því að smella á "Scorecard" er alltaf hægt að skoða stöðuna á skorkorti.
- Þegar leik er lokið á fyrstu holu birtist mynd frá næsta teig og leikurinn heldur áfram.