Með nýja TrackMan Range VG geta kylfingar upplifað virkni golfherma á æfingasvæði Bása.
Í boði er að leika suma af áhugaverðustu völlum heims og geta kylfingar nú leikið báða velli GR – Korpuna og Grafarholt, beint af bás.
TrackMan Range VG býður leikmönnum upp á tvo nýja og frábæra eiginleika:
- Hægt er að leika heilan 18 holu eða 9 holu hring í kerfinu. Þeim höggum sem slegin eru með æfingaboltum er breytt af kerfinu í raunverulegar lengdir, líkt og verið væri að spila með venjulegum bolta úti á velli. Þegar boltinn lendir innan við 18 metra frá pinna klárar kerfið sjálfkrafa útreikning og gefur skor á holuna. Hægt er að spila TrackMan VG bæði einn og í hóp með öðrum og tekur 18 holu hringur venjulega ekki meira en klukkutíma fyrir tvo leikmenn.
- Auk þess að geta leikið heilan golfhring geta kylfingar líka nýtt sér æfingahluta kerfisins (Practice on course). Í þessum hluta er hægt að láta bolta falla á ákveðnum stað á þeim völlum sem eru í boði og æfa sama höggið aftur og aftur á viðkomandi velli. Með þessari æfingu verða engar afsakanir fyrir lélegum höggum í upphafi tímabilsins.