16.01.2020

Vetrarþjálfun hjá Arnari Snæ

Arnar Snær Hákonarson býður upp á vetrarþjálfun í golfi og hefjast námskeiðin í byrjun febrúar.

Markmiðið með þjálfuninni er að ná betri tökum á golfsveiflunni og koma vel undirbúin/n í golfsumarið 2020. Æfingarnar fara fram í Básum, Grafarholti og innanhúss á Korpúlfsstöðum. Hvert námskeið stendur yfir í 8 vikur og hefjast þau fyrstu 3. febrúar næstkomandi.  Eftirfarandi atriði verða tekin fyrir á námskeiðunum:

  • Lengri teighögg
  • Færri pútt þar sem sérstaklega verður farið yfir lengdarstjórnun og vanaferli
  • Boltaflug hvernig sláum við boltann frá hægri til vinstri(draw) og vinstri til hægri(fade)
  • Aukin högglengd meiri kylfuhraði
  • Kylfuval í vippum há vipp og vipp og rúll
  • Mismunandi tækni í vippum fyrir mismunandi aðstæður
  • Markmiðasetning fyrir kylfinga á öllum getustigum
  • Leikskipulag og markvissar æfingar til að vinna eftir

Vetrarþjálfun er fyrir alla kylfinga í öllum klúbbum hvort sem þú ert byrjandi eða lengra komin/n þá er þetta besta leiðin til að ná betri tökum á leiknum.

Þessi námskeið verða í boði:

Hópur 1 
Mánudagar 20:00–20:30 og annan hvern laugardag 09:00–10:00 (fyrsti tími 3.feb)

Hópur 2
Mánudagar 20:30–21:00 og annan hvern laugardag 09:00-10:00 (fyrsti tími 3.feb)

Hópur 3
Þriðjudagar 16:30-17:00 og annan hvern laugardag 10:00–11:00 (fyrsti tími 4.feb)

Hópur 4
Þriðjudagar 17:00–17:30 og annan hvern laugardag 10:00–11:00 (fyrsti tími 4.feb)

Hópur 5 
Þriðjudagar 17:30–18:00 og annan hvern laugardag 11:00–12:00 (fyrsti tími 4.feb)

Hópur 6
Þriðjudagar 18:00–18:30 og annan hvern laugardag 11:00–12:00 (fyrsti tími 4.feb)

Hópur 7
Miðvikudagar 17:30–18:00 og annan hvern laugardag 09:00–10:00 (fyrsti tími 5.feb)

Hópur 8
Miðvikudagar 18:00–18:30 og annan hvern laugardag 09:00–10:00 (fyrsti tími 5.feb)

Hópur 9
Miðvikudagar 18:30–19:00 og annan hvern laugardag 10:00–11:00 (fyrsti tími 5.feb)

Hópur 10
Miðvikudagar 19:00–19:30 og annan hvern laugardag 10:00–11:00 (fyrsti tími 5.feb)

Verð pr. námskeið er kr. 15.000
*æfingarboltar ekki innifaldir í verði

Ef tveir eða fleiri skrá sig saman er gefinn 20% afsláttur

Skráning fer fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is og er námskeiðsgjald greitt við skráningu.

Til baka í fréttalista