25.01.2021

Vetrarþjálfun 2021 – enn fleiri námskeið komin á dagskrá

Arnar Snær Hákonarson býður upp á vetrarþjálfun í golfi og hafa námskeiðin sem hafa verið auglýst verið fljót að fyllast. Nú eru komin enn fleiri námskeið á dagskrá og má sjá upplýsingar um dagsetningarnar hér fyrir neðan. Markmiðið með þjálfuninni er að ná betri tökum á golfsveiflunni og koma vel undirbúin í golfsumarið 2021. Æfingarnar fara fram í Básum, Grafarholti og innanhúss á Korpúlfsstöðum.

Hvert námskeið verður í 8 vikur og hefjast fyrstu námskeiðin 8. febrúar 

Eftirfarandi atriði verða tekin fyrir:

  • Lengri teighögg
  • Færri pútt þar sem sérstaklega verður farið yfir lengdarstjórnun og vanaferli
  • Boltaflug hvernig sláum við boltann frá hægri til vinstri(draw) og vinstri til hægri(fade)
  • Aukin högglengd meiri kylfuhraði
  • Kylfuval í vippum há vipp og vipp og rúll
  • Mismunandi tækni í vippum fyrir mismunandi aðstæður
  • Markmiðsetning fyrir kylfinga á öllum getu stigum
  • Leikskipulag og markvissar æfingar til að vinna eftir

Vetrarþjálfun er fyrir alla kylfinga í öllum klúbbum hvort sem þú ert byrjandi eða lengra kominn þá er þetta besta leiðinn til að ná betri tökum á leiknum.

Hópur 14 - Mánudagar 19:00 – 19:30 og annan hvern laugardag 12:00 – 13:00 (fyrsti tími 8.feb)
Hópur 15 - Mánudagar 19:30 – 20:00 og annan hvern laugardag 12:00 – 13:00 (fyrsti tími 8.feb)
Hópur 16 - Þriðjudagur 19:00 – 19:30 og annan hvern laugardag 13:00 – 14:00 (fyrsti tími 9.feb)
Hópur 17 - Þriðjudagar 20:00 – 20:30 og annan hvern laugardag 13:00 – 14:00 (fyrsti tími 9.feb)
Hópur 18 - FULLBÓKAÐ
Hópur 19 - Miðvikudagar 18:30 – 19:00 og annan hvern laugardag 14:00 – 15:00 (fyrsti tími 10.feb)

Verð kr. 15.000
Ef tveir eða fleiri skrá sig saman er veittur 20% afsláttur*
Æfingarboltar ekki innifaldir í verði

Skráning fer fram hjá Arnari Snæ í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is 
*Greitt er við skráningu

Til baka í fréttalista