Vetrarþjálfun 2021

Arnar Snær Hákonarson, PGA golfkennari, mun bjóða upp á vetrarþjálfun í golfi. Markmiðið með þjálfuninni er að ná betri tökum á golfsveiflunni og koma vel undirbúin í golfsumarið 2021. Æfingarnar hefjast í febrúar og fara fram í Básum, Grafarholti og innanhúss á Korpúlfsstöðum.
Hvert námskeið stendur yfir í 8 vikur og hefjast fyrstu námskeiðin 1. febrúar
Eftirfarandi atriði verða tekin fyrir:
- Lengri teighögg
- Færri pútt þar sem sérstaklega verður farið yfir lengdarstjórnun og vanaferli
- Boltaflug hvernig sláum við boltann frá hægri til vinstri(draw) og vinstri til hægri(fade)
- Aukin högglengd meiri kylfuhraði
- Kylfuval í vippum há vipp og vipp og rúll
- Mismunandi tækni í vippum fyrir mismunandi aðstæður
- Markmiðsetning fyrir kylfinga á öllum getu stigum
- Leikskipulag og markvissar æfingar til að vinna eftir
Vetrarþjálfun er fyrir alla kylfinga í öllum klúbbum hvort sem þú ert byrjandi eða lengra kominn þá er þetta besta leiðin til að ná betri tökum á leiknum.
Hópur 1 - Mánudagar 16:30 – 17:00 og annan hvern laugardag 09:00 – 10:00 (fyrsti tími 1.feb)
Hópur 2 - Mánudagar 17:00 – 17:30 og annan hvern laugardag 09:00 – 10:00 (fyrsti tími 1.feb)
Hópur 3 - Mánudagar 17:30 – 18:00 og annan hvern laugardag 10:00 – 11:00 (fyrsti tími 1.feb)
Hópur 4 - Þriðjudagar 18:30 – 19:00 og annan hvern laugardag 10:00 – 11:00 (fyrsti tími 2.feb)
Hópur 5 - Þriðjudagar 19:30 – 20:00 og annan hvern laugardag 11:00 – 12:00 (fyrsti tími 2.feb)
Hópur 6 - Miðvikudagar 19:30 – 20:00 og annan hvern laugardag 11:00 – 12:00 (fyrsti tími 3.feb)
Verð 15.000 kr
Ef tveir eða fleiri skrá sig saman er veittur 20% afsláttur* - æfingarboltar eru ekki innifaldir í verði
Skráning fer fram hjá Arnari Snæ í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is
*Greitt er við skráningu