Sumar yfirferð – Golfnámskeið í júlí

Þrátt fyrir vætu þetta sumarið er engin ástæða til að gefa eftir í æfingunum og undirbúningi. Arnar Snær, PGA golfkennari, heldur eftirfarandi námskeið hjá Golfklúbbi Reykjavíkur í júlí:
Kvennanámskeið - Stórskemmtileg námskeið fyrir konur þar sem áhersla verður lögð á trékylfur og stuttaspil
Tvö byrjendanámskeið - Besta leiðin til að byrja í sportinu
Framhaldsnámskeið fyrir byrjendur - Smá upprifjun og framhald fyrir þá sem hafa tekið byrjendanámskeið
Stuttaspilsnámskeið - Besta leiðin til að skafa af skorkortinu
Fínpússun fyrir alla (Hádegisnámskeið) - Fyrir þá sem vilja smá upprifjun og yfirferð fyrir tímabilið
Kvennanámskeið
Frábært námskeið fyrir kvenkylfinga sem vilja ná betri tökum á golfleiknum þar sem sértaklega verður farið í teighögg og trékylfur og stuttaspil. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) klukkan 20:00-21:00 á mánudögum og miðvikudögum og á laugardögum kl 10:00-11:00. Námskeiðið hefst miðvikudaginn 11.júlí í Básum, Grafarholti.
Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Byrjendanámskeið 1
Frábært námskeið fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í leiknum og vilja gera þetta rétt og ná tökum á leiknum sem fyrst. Farið verður vel yfir alla grunnþætti í golfinu. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 17:00-18:00 á mánudögum og miðvikudögum og á laugardögum kl 12:00-13:00. Námskeiðið hefst miðvikudaginn 11.júlí í Básum, Grafarholti.
Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Byrjendanámskeið 2
Frábært námskeið fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í leiknum og vilja gera þetta rétt og ná tökum á leiknum sem fyrst. Farið verður vel yfir alla grunnþætti í golfinu. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 18:00-19:00 á þriðjudögum og fimmtudögum og á laugardögum kl 13:00-14:00. Námskeiðið hefst fimmtudaginn 12.júlí í Básum, Grafarholti.
Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Framhaldsnámskeið fyrir byrjendur
Skemmtilegt námskeið fyrir kylfinga sem eru komnir aðeins áfram í sportinu og vilja taka næsta skrefið í sínum leik. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 19:00-20:00 á þriðjudögum og fimmtudögum og á laugardögum kl 11:00-12:00. Námskeiðið hefst fimmtudaginn 12.júlí í Básum, Grafarholti.
Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Stuttaspilsnámskeið
Tilvalið námskeið fyrir alla kylfinga sem vilja fá góða yfirferð á stuttaspilinu. Námskeiðið er þrjú skipti (3x 60 mín) frá klukkan 09:00-10:00 á laugardögum. Námskeiðið hefst laugardaginn 14.júlí í Básum, Grafarholti.
Verð 10.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Fínpússun fyrir alla (Hádegisnámskeið)
Tilvalið námskeið fyrir alla kylfinga sem eru komnir með forgjöf og vilja smá yfirferð á miðju sumri. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 12:00-13:00 á mánudögum og miðvikudögum. Námskeiðið hefst miðvikudaginn 11.júlí í Básum, Grafarholti.
Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Hámarksfjöldi í hverjum hóp eru sex kylfingar. Kennari verður Arnar Snær Hákonarsson PGA golfkennari og fara skráningar fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is