12.05.2020

Sláum saman kort komin í sölu – frábær pakki fyrir byrjendur

Æfingasvæði Bása og Golfklúbbur Reykjavíkur bjóða upp á frábæra leið fyrir áhugasama um golfíþróttina, Sláum saman - pakkinn samanstendur af aðgangi að tveimur æfingavöllum, Grafarkoti og Thorsvelli ásamt aðgangi að æfingasvæði fyrir stuttaspilið framan við Bása. Ekki er þörf á að bóka sig í rástíma á æfingavelli, bara mæta og hafa gaman.

Tilvalið fyrir fólk á öllum aldri sem hefur gælt við hugmyndina um að kynna sér golfíþróttina.

Tilboðsverð fyrir pakkann er kr. 24.500 - 67 ára og eldri greiða kr. 18.375

Innifalið er:
- Aðgangur að Thorsvelli, Korpúlfsstöðum (9 holur)
- Aðgangur að Grafarkotsvelli, Grafarholti (6 holur)
- Aðgangur að æfingasvæði fyrir stuttaspil

Sala á kortum fer fram í afgreiðslu Bása og í golfverslun GR á Korpúlfsstöðum

Til baka í fréttalista