06.06.2018

Ný golfnámskeið í júní

Sumarið er loksins komið og golfið komið á fullt. Hvort sem þú ert byrjandi eða lengra kominn er tilvalið að skella sér á golfnámskeið í júní og fá smá leiðsögn. Eftirfarandi námskeið verða í boði hjá Arnari Snæ í júní:

Hádegisnámskeið – Almennt námskeið fyrir alla
Kvennanámskeið – Skemmtilegt námskeið fyrir konur, áhersla verður lögð á trékylfur og vipp
Stuttaspilsnámskeið - Pútt, vipp og glompa
Algjör byrjandi – Fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref 
Framhaldsnámskeið fyrir byrjendur – Næsta skrefið fyrir byrjendur 

Hámarksfjöldi í hverjum hóp eru sex kylfingar. Kennari er Arnar Snær Hákonarsson PGA golfkennari og fara skráningar fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is

Nánari upplýsingar um námskeiðin má sjá hér fyrir neðan:

Hádegisnámskeið 
Tilvalið námskeið fyrir alla kylfinga sem eru komnir með forgjöf og vilja koma vel undirbúnir inn í golfsumarið. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 12:00-13:00 á mánudögum og fimmtudögum. Námskeiðið hefst fimmtudaginn 14.júní í Básum, Grafarholti.

Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)

Kvennanámskeið
Frábært námskeið fyrir kvenkylfinga sem vilja ná betri tökum á golfleiknum þar sem sértaklega verður farið í teighögg og vipp. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 18:30-19:30 á mánudögum og fimmtudögum. Námskeiðið hefst fimmtudaginn 14.júní í Básum, Grafarholti.

Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)

Stuttaspilsnámskeið
Tilvalið námskeið fyrir alla kylfinga sem vilja fá góða yfirferð á stuttaspilinu. Námskeiðið er þrjú skipti (3x 60 mín) frá klukkan 09:00-10:00 á laugardögum. Námskeiðið hefst laugardaginn 16.júní í Básum, Grafarholti.

Verð 10.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)

Algjör byrjandi
Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 17:30-18:30 á fimmtudögum og laugardögum kl 11:00-12:00. Námskeiðið hefst fimmtudaginn 14.júní í Básum, Grafarholti.

Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)

Framhaldsnámskeið fyrir byrjendur
Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 17:30-18:30 á mánudögum og laugardögum kl 12:00-13:00. Námskeiðið hefst mánudaginn 11.júní í Básum, Grafarholti.

Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)

Til baka í fréttalista