08.09.2020

Ný golfnámskeið á dagskrá í september

Ný frábær golfnámskeið í september. Hvort sem þú ert byrjandi eða lengra kominn er alltaf rétti tíminn til að læra eitthvað nýtt og ná betri tökum á sveiflunni. Eftirfarandi námskeið verða í boði hjá Arnari Snæ í september:

  • Almennt námskeið – Skemmtilegt námskeið fyrir alla
  • Byrjendanámskeið – Fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref
  • Byrjendanámskeið (helgarnámskeið) – Fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref
  • Framhaldsnámskeið – Fyrir þá sem vilja koma leiknum sínum af byrjenda stiginu

Hámarksfjöldi í hverjum hóp eru sex kylfingar. Kennari er Arnar Snær Hákonarsson PGA golfkennari og fara skráningar fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is 

Nánari upplýsingar um námskeiðin má sjá hér fyrir neðan:

Almennt námskeið
Frábært námskeið fyrir alla kylfinga sem vilja ná betri tökum á golfleiknum þar sem sértaklega verður farið í teighögg og vipp. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 19:00-20:00 á mánudögum og miðvikudögum og klukkan 10:00-11:00 á laugardögum. Námskeiðið hefst miðvikudaginn 16.september og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:

  • 16.sept:    Básar – Sveifla
  • 19.sept:    Básar – Lengri teighögg
  • 21.sept:    Básar – Stuttaspil
  • 23.sept:    Básar – Lengri kylfur
  • 26.sept:    Básar – Sveifla/teighögg

Verð 20.000 kr.  (Boltar ekki innifaldir)

Byrjendanámskeið í golfi
Námskeiðið er kennt á mánudögum og miðvikudögum kl 18:00-19:00. Kennt verður á eftirtöldum dagsetningum og hefst námskeiðið miðvikudaginn 16.september í Básum, Grafarholti

  • 16.sept   
  • 21.sept   
  • 23.sept   
  • 28.sept  
  • 30.sept 

Verð 20.000 kr.  (Boltar ekki innifaldir)

Byrjendanámskeið í golfi (Helgarnámskeið)
Frábært námskeið fyrir byrjendur sem vilja læra grunnatriðin í golfi þar sem farið verður alla þætti í sportinu. Á laugardeginum verður farið í allt sem við kemur stuttaspilinu farið verður í grunnatriði í hverjum hluta á sunnudeginum verður farið yfir sveifluna og tæknina á bakvið hana. Námskeiðið fjórir tímar (4x 60 mín) og verður kennt á laugardeginum og sunnudeginum frá klukkan kl. 12:00-14:00. Námskeiðið er laugardagin 12.september og sunnudaginn 13.september og verður í Básum, Grafarholti:

Verð 15.000 kr.  (Boltar ekki innifaldir)

Framhaldsnámskeið
Frábært námskeið fyrir kylfinga sem vilja koma leiknum af byrjenda stiginu. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 20:00-21:00 á mánudögum og miðvikudögum og laugardögum frá 11:00 – 12:00. Námskeiðið hefst miðvikudaginn 16.september og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:

  • 18.sept:    Básar – Sveifla
  • 21.sept:    Básar – Lengri teighögg
  • 23.sept:    Básar – Stuttaspil
  • 25.sept:    Básar – Lengri kylfur
  • 28.sept:    Básar – Sveifla/teighögg

Verð 20.000 kr.  (Boltar ekki innifaldir)

Til baka í fréttalista