Ný glæsileg golfnámskeið í júní

Ný frábær golfnámskeið í júní. Hvort sem þú ert byrjandi eða lengra kominn er alltaf rétti tíminn til að læra eitthvað nýtt og ná betri tökum á sveiflunni. Eftirfarandi námskeið verða í boði hjá Arnari Snæ í júní:
Byrjendanámskeið – Fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref
Byrjendanámskeið (Helgarnámskeið) – Fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref
Framhaldsnámskeið – Fyrir þá sem vilja koma leiknum sínum af byrjenda stiginu
Helgarnámskeið – Alvöru keyrsla! Alvöru námskeið
Nánari upplýsingar um námskeiðin má sjá hér fyrir neðan:
Byrjendanámskeið í golfi á mánudögum og laugardögum
Námskeiðið er kennt á mánudögum kl 18:00-19:00 og á laugardögum frá 09:00-10:00. Kennt verður á eftirtöldum dagsetningum og hefst námskeiðið mánudaginn 6.júní í Básum, Grafarholti
6.júní: Básar
11.júní: Básar
13.júní: Básar
15.júní: Básar
20.júní: Básar
Verð 24.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Byrjendanámskeið í golfi á mánudögum og miðvikudögum
Námskeiðið er kennt á mánudögum kl 17:00-18:00 og á miðvikudögum frá 17:00-18:00. Kennt verður á eftirtöldum dagsetningum og hefst námskeiðið mánudaginn 6.júní í Básum, Grafarholti
6.júní: Básar
8.júní: Básar
13.júní: Básar
15.júní: Básar
20.júní: Básar
Verð 24.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Byrjendanámskeið í golfi á þriðjudögum og fimmtudögum
Námskeiðið er kennt á þriðjudögum kl 18:00-19:00 og á fimmtudögum frá 18:00-19:00. Kennt verður á eftirtöldum dagsetningum og hefst námskeiðið þriðjudaginn 7.júní í Básum, Grafarholti
7.júní: Básar
9.júní: Básar
14.júní: Básar
16.júní: Básar
21.júní: Básar
Verð 24.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Byrjendanámskeið í golfi (Helgarnámskeið) 4-5 júní
Frábært námskeið fyrir byrjendur sem vilja læra grunnatriðin í golfi þar sem farið verður alla þætti í sportinu. Á laugardeginum verður farið í allt sem við kemur stuttaspilinu farið verður í grunnatriði í hverjum hluta á sunnudeginum verður farið yfir sveifluna og tæknina á bakvið hana. Námskeiðið fjórir tímar (4x 60 mín) og verður kennt á laugardeginum og sunnudeginum frá klukkan kl. 12:00-14:00. Námskeiðið er laugardaginn 4.júní og sunnudaginn 5.júní og verður í Básum, Grafarholti
Verð 20.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Byrjendanámskeið í golfi (Helgarnámskeið) 18-19 júní
Frábært námskeið fyrir byrjendur sem vilja læra grunnatriðin í golfi þar sem farið verður alla þætti í sportinu. Á laugardeginum verður farið í allt sem við kemur stuttaspilinu farið verður í grunnatriði í hverjum hluta á sunnudeginum verður farið yfir sveifluna og tæknina á bakvið hana. Námskeiðið fjórir tímar (4x 60 mín) og verður kennt á laugardeginum og sunnudeginum frá klukkan kl. 12:00-14:00. Námskeiðið er laugardaginn 18.júní og sunnudaginn 19.júní og verður í Básum, Grafarholti
Verð 20.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Framhaldsnámskeið
Frábært námskeið fyrir kylfinga sem vilja koma leiknum af byrjenda stiginu. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 20:00-21:00 á mánudögum og laugardögum frá 11:00 – 12:00. Námskeiðið hefst mánudaginn 6.júní og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:
6.júní: Básar – Sveifla
11.júní: Básar – Lengri teighögg
13.júní: Básar – Stuttaspil
15.júní: Básar – Lengri kylfur
20.júní: Básar – Sveifla/teighögg
Verð 24.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Helgarnámskeið – Stuttaspil og sveifla (4-5 júní)
Á laugardeginum verður farið í allt sem við kemur stuttaspilinu farið verður í grunnatriði í hverjum hluta og æfingar sem skila árangri og á sunnudeginum farið yfir sveifluna og tæknina á bakvið hana. Námskeiðið fjórir tímar (4x 60 mín) og verður kennt á laugardeginum og sunnudeginum frá klukkan kl. 14:00-16:00. Námskeiðið er laugardaginn 4.júní og sunnudaginn 5.júní og verður í Básum, Grafarholti
Verð 20.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Hámarksfjöldi í hverjum hóp eru fjórir kylfingar. Kennari er Arnar Snær Hákonarsson PGA golfkennari og fara skráningar fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is