Ný glæsileg byrjendanámskeið

Ný frábær byrjendanámskeið komin á dagskrá hjá Arnari Snæ - tilvalið fyrir þá sem eru að taka sín fystu skref í íþróttinni.
Hámarksfjöldi í hverjum hóp eru sex kylfingar. Kennari er Arnar Snær Hákonarsson PGA golfkennari og fara skráningar fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is
Nánari upplýsingar um námskeiðin má sjá hér fyrir neðan:
Byrjendanámskeið 1
Námskeiðið er kennt á þriðjudögum kl 20:30-21:30 og á fimmtudögum kl 20:30-21:30. Kennt verður á eftirtöldum dagsetningum og hefst námskeiðið þriðjudaginn 9.júní í Básum, Grafarholti
- 9.júní: Básar
- 11.júní: Básar
- 16.júní: Básar
- 18.júní: Básar
- 23.júní: Básar
Verð 18.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Byrjendanámskeið 2
Námskeiðið er kennt á miðvikudögum kl 17:00-18:00 og á föstudögum frá 17:00-18:00. Kennt verður á eftirtöldum dagsetningum og hefst námskeiðið miðvikudaginn 10.júní í Básum, Grafarholti
- 10.júní: Básar
- 12.júní: Básar
- 17.júní: Básar
- 19.júní: Básar
- 22.júní: Básar
Verð 18.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Byrjendanámskeið í golfi (Helgarnámskeið) 13-14 júní
Frábært námskeið fyrir byrjendur sem vilja læra grunnatriðin í golfi þar sem farið verður alla þætti í sportinu. Á laugardeginum verður farið í allt sem við kemur stuttaspilinu farið verður í grunnatriði í hverjum hluta á sunnudeginum verður farið yfir sveifluna og tæknina á bakvið hana. Námskeiðið fjórir tímar (4x 60 mín) og verður kennt á laugardeginum og sunnudeginum frá klukkan kl. 12:00-14:00. Námskeiðið er laugardaginn 13.júní og sunnudaginn 14.júní og verður í Básum, Grafarholti
Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)