28.05.2019

Ný frábær golfnámskeið í júní

Ný frábær golfnámskeið verða á dagskrá hjá Arnari Snæ, PGA golfkennara, í júní. Hvort sem þú ert byrjandi eða lengra kominn er ekki tilvalið að skella sér á golfnámskeið í júní og keyra golfsumarið almennilega í gang. Eftirfarandi námskeið verða í boði hjá Arnari júní:

Golfnámskeið fyrir lengri komna – Fyrir þá sem vilja koma vel undirbúnir í sumarið
Almennt námskeið – Skemmtilegt námskeið fyrir alla
Byrjendanámskeið – Fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref 
Byrjendanámskeið (Helgarnámskeið) – Fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref 
Framhaldsnámskeið – Fyrir þá sem vilja koma leiknum sínum af byrjenda stiginu 
Helgarnámskeið – Alvöru keyrsla! Alvöru námskeið!

Hámarksfjöldi í hverjum hóp eru sex kylfingar. Kennari er Arnar Snær Hákonarsson PGA golfkennari og fara skráningar fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is 

Nánari upplýsingar um námskeiðin má sjá hér fyrir neðan:

Golfnámskeið fyrir lengri komna
Tilvalið námskeið fyrir kylfinga sem eru með 10-28 í forgjöf og vilja koma vel undirbúnir inn í golfsumarið. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 18:00-19:00 á þriðjudögum og fimmtudögum. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 4.júní og verður kennt á eftir eftirtöldum dagsetningum:

4.júní:    Básar – Járnahögg
6.júní:    Básar – Teighögg
11.júní:  Básar – Brautartré/Hybrid
13.júní:  Básar – Vipp
18.júní:  Básar – Pútt

Verð 18.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)

Almennt námskeið
Frábært námskeið fyrir alla kylfinga sem vilja ná betri tökum á golfleiknum þar sem sértaklega verður farið í teighögg og vipp. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 19:00-20:00 á mánudögum og miðvikudögum. Námskeiðið hefst mánudaginn 3.júní og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:

3.júní:    Básar – Sveifla
5.júní:    Básar – Lengri teighögg
10.júní:  Básar – Golfsveiflan fínpússuð
12.júní:  Básar – Vipp
17.júní:  Básar – Sveifla/teighögg (09:00-10:00)

Verð 18.000 kr.  (Boltar ekki innifaldir)

Byrjendanámskeið í golfi
Námskeiðið er kennt á mánudögum og miðvikudögum kl 18:00-19:00 og á laugardögum frá 09:00-10:00. Kennt verður á eftirtöldum dagsetningum og hefst námskeiðið mánudaginn 3.júní í Básum, Grafarholti

3.júní:    Básar
5.júní:    Básar
8.júní:    Básar 
10.júní:  Básar 
12.júní:  Básar

Verð 18.000 kr.  (Boltar ekki innifaldir)

Byrjendanámskeið í golfi (Helgarnámskeið)
Frábært námskeið fyrir byrjendur sem vilja læra grunnatriðin í golfi þar sem farið verður alla þætti í sportinu. Á laugardeginum verður farið í allt sem við kemur stuttaspilinu farið verður í grunnatriði í hverjum hluta á sunnudeginum verður farið yfir sveifluna og tæknina á bakvið hana. Námskeiðið fjórir tímar (4x 60 mín) og verður kennt á laugardeginum og sunnudeginum frá klukkan kl. 12:00-14:00. Námskeiðið er laugardaginn 1.júní og sunnudaginn 2.júní og verður í Básum, Grafarholti:

Verð 15.000 kr.  (Boltar ekki innifaldir)

Framhaldsnámskeið
Frábært námskeið fyrir kylfinga sem vilja koma leiknum af byrjenda stiginu. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 20:00-21:00 á mánudögum og miðvikudögum. Námskeiðið hefst mánudaginn 3.júní og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:

3.júní:    Básar – Sveifla
5.júní:    Básar – Lengri teighögg
10.júní:  Básar – Golfsveiflan fínpússuð
12.júní:  Básar – Vipp
17.júní:  Básar – Sveifla/teighögg (10:00-11:00)

Verð 18.000 kr.  (Boltar ekki innifaldir)

Helgarnámskeið – Stuttaspil og sveifla
Á laugardeginum verður farið í allt sem við kemur stuttaspilinu farið verður í grunnatriði í hverjum hluta og æfingar sem skila árangri og á sunnudeginum farið yfir sveifluna og tæknina á bakvið hana. Námskeiðið fjórir tímar (4x 60 mín) og verður kennt á laugardeginum og sunnudeginum frá klukkan kl. 12:00-14:00. Námskeiðið er laugardaginn 1.júní og sunnudaginn 2.júní og verður í Básum, Grafarholti:

Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)

Til baka í fréttalista