Meistaramótsvika GR framundan - Opnunatímar í Básum
Á sunnudag hefst skemmtilegasta vika sumarsins hjá félagsmönnum GR en þá er fyrsti dagur Meistaramóts sem mun standa yfir til laugardagsins 14. júlí.
Æfingasvæði Bása mun vera opið alla keppnisdagana, nema laugardag, frá kl. 06:00-22:00. Eingöngu verður hægt að nýta sjálfsafgreiðslukerfi eða boltakort frá kl. 06:00-10:00 á morgnana en frá kl. 10:00 mun starfsmaður vera á staðnum.