07.06.2019

Golfdagur PGA á Íslandi - Stelpugolf

Golfdagur PGA á Íslandi verður haldinn mánundaginn 10. júní og er haldinn í samstarfi við GSÍ. Golfdagurinn stendur frá kl. 11-14 og verður haldinn í Grafarholti Reykjavík (við Bása), á Blönduósi, Norðfirði og Höfn í Hornafirði.

Stelpugolf er hluti af Golfdegi PGA og er markmiðið með því að fjölga að fjölga kylfingum á öllum aldri og auka fjölskylduímynd golfíþróttarinnar. Gestir sem mæta fá tækifæri til að fara í gegnum mismunandi stöðvar þar sem PGA golfkennaranemar, PGA kennarar og afrekskylfingar verða til staðar að leiðbeina. Boðið verður upp á skemmtilegar þrautir og leiki ásamt kennslu í hinum ýmsu þáttum leiksins. Kylfur verða á staðnum fyrir þá sem vantar, það er engin nauðsyn að vera allan tímann og vel mögulegt að koma í styttri tíma sem og lengri.

Viðburðurinn er öllum opinn og er hægt að finna frekari upplýsingar á facebook undir Stelpugolf

Til baka í fréttalista