Ný golfnámskeið hjá Arnari Snæ í september

Fleiri ný og frábær golfnámskeið á dagskrá, hvort sem þú ert byrjandi eða lengra kominn er alltaf rétti tíminn til að læra eitthvað nýtt og ná betri tökum á sveiflunni. Eftirfarandi námskeið verða í boði hjá Arnari Snæ í september.
Almennt námskeið – Skemmtilegt námskeið fyrir alla
Byrjendanámskeið – Fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref
Byrjendanámskeið (helgarnámskeið) – Fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref
Framhaldsnámskeið – Fyrir þá sem vilja koma leiknum sínum af byrjenda stiginu
Hámarksfjöldi í hverjum hóp eru sex kylfingar. Kennari er Arnar Snær Hákonarsson PGA golfkennari og fara skráningar fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is
Nánari upplýsingar um námskeiðin má sjá hér fyrir neðan:
Almennt námskeið
Frábært námskeið fyrir alla kylfinga sem vilja ná betri tökum á golfleiknum þar sem sértaklega verður farið í teighögg og vipp. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 19:00-20:00 á mánudögum og miðvikudögum og klukkan 10:00-11:00 á laugardögum. Námskeiðið hefst miðvikudaginn 18.september og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:
18.sept: Básar – Sveifla
21.sept: Básar – Lengri teighögg
23.sept: Básar – Stuttaspil
25.sept: Básar – Lengri kylfur
28.sept: Básar – Sveifla/teighögg
Verð 18.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Byrjendanámskeið í golfi
Námskeiðið er kennt á mánudögum og miðvikudögum kl 17:00-18:00. Kennt verður á eftirtöldum dagsetningum og hefst námskeiðið miðvikudaginn 18.september í Básum, Grafarholti
18.sept - miðvikud.
21.sept - laugard.
23.sept - mánud.
25.sept - miðvikud.
28.sept - laugard.
Verð 18.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Byrjendanámskeið í golfi (Helgarnámskeið)
Frábært námskeið fyrir byrjendur sem vilja læra grunnatriðin í golfi þar sem farið verður alla þætti í sportinu. Á laugardeginum verður farið í allt sem við kemur stuttaspilinu farið verður í grunnatriði í hverjum hluta á sunnudeginum verður farið yfir sveifluna og tæknina á bakvið hana. Námskeiðið fjórir tímar (4x 60 mín) og verður kennt á laugardeginum og sunnudeginum frá klukkan kl. 12:00-14:00. Námskeiðið er laugardagin 14.september og sunnudaginn 15.september og verður í Básum, Grafarholti.
Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Framhaldsnámskeið
Frábært námskeið fyrir kylfinga sem vilja koma leiknum af byrjenda stiginu. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 20:00-21:00 á mánudögum og miðvikudögum og laugardögum frá 11:00 – 12:00. Námskeiðið hefst miðvikudaginn 18.september og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:
18.sept: Básar – Sveifla
21.sept: Básar – Lengri teighögg
23.sept: Básar – Stuttaspil
25.sept: Básar – Lengri kylfur
28.sept: Básar – Sveifla/teighögg
Verð 18.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)