Er vorið ekki komið? – Golfnámskeið í apríl

Nú er vorið um það bil komið og rétti tíminn til að æfa fyrir sumarið er núna! Er ekki tilvalið að skella sér á golfnámskeið í apríl og koma vel æfð/ur inn í sumarið. Arnar Snær og Golfklúbbur Reykjavíkur hafa sett ný námskeið á dagskrá í apríl og er skráning hafin.
Hámarksfjöldi í hverjum hóp eru sex kylfingar. Kennari verður Arnar Snær Hákonarsson PGA golfkennari og fara skráningar fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is
Nánari upplýsingar um námskeiðin má sjá hér fyrir neðan.
Byrjendanámskeið 1&2 – Besta leiðin til að byrja í golfi
Eilífðar byrjandi – Framhaldsnámskeið fyrir byrjendur og þá sem eru að snúa sér aftur að golfi og vilja fá góða upprifjun
Burt með slæsið! – Námskeið þar sem aðal áherslan verður lögð á að lagfæra slæs með öllum kylfum
Yfirferð fyrir lengri komna – Fyrir þá sem vilja yfirferð á öllum leiknum sínum fyrir sumarið
Lærðu að æfa og greina veikleika – Fyrir þá sem vilja taka lengra námskeið þar sem áhersla er að læra að æfa
Byrjendanámskeið 1
Frábært námskeið fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í leiknum og vilja gera þetta rétt og ná tökum á leiknum sem fyrst. Námskeiðið er tíu skipti (5x 60 mín) frá klukkan 17:00-18:00 á mánudögum og miðvikudögum og klukkan 11:00-12:00 á laugardögum. Námskeiðið hefst mánudaginn 1.apríl og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:
1.apríl: Básar – Grip
3.apríl: Básar – Grip/Staða
6.apríl: Korpa – Stuttaspil
8.apríl: Básar – Trékylfur
10.apríl: Básar – Upprifjun og fínpúss
Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Byrjendanámskeið 2
Frábært námskeið fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í leiknum og vilja gera þetta rétt og ná tökum á leiknum sem fyrst. Námskeiðið er tíu skipti (5x 60 mín) frá klukkan 17:00-18:00 á þriðjudögum og fimmtudögum og klukkan 13:00-14:00 á laugardögum. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 2.apríl og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:
1.apríl: Básar – Grip
3.apríl: Básar – Grip/Staða
6.apríl: Korpa – Stuttaspil
8.apríl: Básar – Trékylfur
10.apríl: Básar – Upprifjun og fínpúss
Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Eilífðar byrjandi
Námskeið fyrir golfara sem eru að byrja aftur og vilja góða upprifjun. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 18:00-19:00 á mánudögum og miðvikudögum og klukkan 10:00-11:00 á laugardögum. Námskeiðið hefst mánudaginn 1.apríl og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:
1.apríl: Básar – Grip
3.apríl: Básar – Grip/Staða
6.apríl: Korpa – Stuttaspil
8.apríl: Básar – Trékylfur
10.apríl: Básar – Upprifjun og fínpúss
Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Burt með slæsið!
Námskeið fyrir kylfinga sem vilja ná betri tökum á sveiflunni þar sem öll áherslan er að laga slæsið. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 19:00-20:00 á mánudögum og miðvikudögum og kl 12:00-13:00 á laugardögum. Námskeiðið hefst mánudaginn 1.apríl og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:
1.apríl: Básar
3.apríl: Básar
6.apríl: Korpa
8.apríl: Básar
10.apríl: Básar
Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Yfirferð fyrir lengri komna
Upplagt námskeið fyrir þá kylfinga sem ætla að fara með leikinn sinn á næsta plan í sumar. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 20:00-21:00 á mánudögum og 21:00-22:00 á miðvikudögum og kl 10:00-11:00 á laugardögum. Námskeiðið hefst mánudaginn 1.apríl og verður kennt á eftir eftirtöldum dagsetningum:
1.apríl: Básar – Járnahögg
3.apríl: Básar – Teighögg
6.apríl: Korpa – Pútt & Vipp
8.apríl: Básar – Blendingar/trékylfur
10.apríl: Básar – Pitch/Stutthögg
Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Lærðu að æfa og greina veikleikana
Æfingarnámskeið fyrir þá sem vilja koma sér í góða æfingu fyrir sumarið, áhersla verður lögð á alla þætti leiksins. Námskeiðið er tíu (10x 60 mín) frá klukkan 18:00-19:00 á þriðjudögum og fimmtudögum og laugardögum klukkan 09:00-10:00. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 2.apríl
Verð 30.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)