Byrjendanámskeið í apríl

Arnar Snær er kominn með ný og frábær byrjendanámskeið á dagskrá í apríl. Tilvalið fyrir þá sem eru að taka sín fystu skref í íþróttinni og vilja gera sig klár fyrir sumarið.
Um er að ræða tvö námskeið sem kennd verða á fimmtudögum og eru 5 skipti hvert. Nánari upplýsingar má sjá hér fyrir neðan:
Byrjendanámskeið 1
Námskeiðið er kennt á fimmtudögum kl 17:30-18:30. Námskeiðið hefst 8. april og fer kennsla fram í Básum Grafarholti:
- 8.apríl: Básar
- 15.apríl: Básar
- 22.apríl: Básar
- 29.apríl: Básar
- 6.maí: Básar
Verð kr. 20.000 (Boltar ekki innifaldir)
Byrjendanámskeið 2
Námskeiðið er kennt á fimmtudögum kl 18:30-19:30. Námskeiðið hefst 8. april og fer kennsla fram í Básum Grafarholti:
- 8.apríl: Básar
- 15.apríl: Básar
- 22.apríl: Básar
- 29.apríl: Básar
- 6.maí: Básar
Verð kr. 20.000 (Boltar ekki innifaldir)
Hámarksfjöldi í hverjum hóp eru 4 kylfingar. Kennari er Arnar Snær Hákonarsson PGA golfkennari og fara skráningar fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is