Byrjaðu núna! - námskeið í jan/feb

Golfsumarið 2019 verður komið áður en við vitum af og því ekki seinna vænna en að koma sveiflunni af stað. Eftirfarandi námskeið verða í boði hjá Arnari Snæ og Golfklúbbi Reykjavíkur í janúar:
Hámarksfjöldi í hverjum hóp eru sex kylfingar. Kennari verður Arnar Snær Hákonarsson PGA golfkennari og fara skráningar fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is
Nánari upplýsingar um námskeiðin má sjá hér fyrir neðan.
Byrjendanámskeið – Besta leiðin til að byrja í golfi
Framhaldsnámskeið fyrir byrjendur – Framhald fyrir þá sem eru ný byrjaðir
Æfingarnámskeið – Allt sem þú þarft til að ná markmiðum sumarsins
Byrjendanámskeið
Frábært námskeið fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í leiknum og vilja gera þetta rétt og ná tökum á leiknum sem fyrst. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 19:00-20:00 á mánudögum og fimmtudögum. Námskeiðið hefst mánudaginn 21.janúar og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:
21.jan: Básar – Grip
24.jan: Básar – Grip/Staða
28.jan: Básar – Staða/Kraftur
31.jan: Básar – Trékylfur
4.feb: Básar – Upprifjun og fínpúss
Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Framhaldsnámskeið
Frábært námskeið fyrir kylfinga sem vilja ná betri tökum á golfleiknum þar sem sértaklega verður farið í teighögg og trékylfur/blendinga. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 20:00-21:00 á mánudögum og fimmtudögum. Námskeiðið hefst mánudaginn 21.janúar og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:
21.jan: Básar
24.jan: Básar
28.jan: Básar
31.jan: Básar
4.feb: Básar
Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Æfingarnámskeið
Æfingarnámskeið fyrir þá sem vilja koma sér í fleiri fuglafæri og fá fleiri fugla, áhersla verður lögð á fleyghögg, teighögg og pútt . Námskeiðið er tíu skipti (10x 50 mín) frá klukkan 18:00-19:00 á þriðjudögum og fimmtudögum og laugardögum kl 10:00-11:00. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 22.janúar og verður kennt á eftir eftirtöldum dagsetningum:
22.jan – Básar
24.jan – Básar
29.jan – Básar
31.jan – Básar
2.feb - Korpa
5.feb – Básar
7.feb – Básar
9.feb – Korpa
11.feb – Básar
13.feb – Básar
Verð 30.000 kr. (Boltar ekki innifaldir) *Hámarksfjöldi 6 manns