15.03.2020

Básar opnir samkvæmt auglýstum opnunartíma – 30% afsláttur af boltakortum

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum mun samkomubann taka gildi frá og með miðnætti í kvöld. Básar verða áfram opnir samkvæmt auglýstum opnunartíma á meðan á samkomubanni stendur og geta kylfingar því mætt og undirbúið sig fyrir golfsumarið. Takmarkanir verða á fjölda einstaklinga á í samræmi við það sem gefið hefur verið út af Landlækni og minnum við á handþvott, spritt og almennt hreinlæti. Hafa skal í huga að virða skal þá fjarlægð sem Landlæknisembættið leggur til, 2 metra á milli einstaklinga. Það er á ábyrgð hvers og eins að gæta þess að nálægð sé innan þeirra marka sem lagt er til.

Bent hefur á mikilvægi þess að einstaklingar sinni hreyfingu og andlegri heilsu í þeirri vá sem gengur yfir og til að stuðla að því að kylfingar sinni golfiðkun sinni ætlum við að bjóða 30% afslátt af boltakortum frá og með mánudegi til föstudags. Athugið að starfsmaður í afgreiðslu er á vakt alla virka daga frá kl. 16:00.

Samhliða því að geta stundað golfæfingar þá viljum við einnig hvetja kylfinga og fjölskyldur þeirra til að nýta sér þær frábæru gönguleiðir sem eru í kringum golfvelli GR á Korpúlfsstöðum og í Grafarholti. Þrátt fyrir breyttar aðstæður þá fer sól hækkandi og vorar áður en við vitum, því er um að gera að halda sér á hreyfingu, bæði fyrir líkama og sál.

Starfsfólk Bása

Til baka í fréttalista