Nýjar sóttvarnarreglur voru kynntar af heilbrigðisráðherra í gær, samkvæmt þeim eru íþróttir án snertingar utandyra heimilar og geta kylfingar því tekið gleði sína á ný og mætt í Bása frá og með fimmtudeginum 10. desember. Opið verður samkvæmt hefðbundnum opnunartíma
Veiran er þó ekki unnin ennþá og biðjum við alla þá sem mæta til okkar að virða áfram 2ja metra regluna, þvo hendur og spritta. Besta vörnin er að gæta að persónubundnu hreinlæti og minnum við á ábyrgð hvers og eins í þeim efnum.
Hlökkum til að taka á móti ykkur í syngjandi sveiflu!