07.10.2020

Áfram opið í Básum – hámark 20 manns

Áfram verður opið hjá okkur í Básum nú þegar hertari reglur hafa tekið gildi vegna Covid-19. Frá og með deginum í dag tekur fjöldatakmörkun upp á 20 manns gildi og mun það gilda a.m.k. næstu tvær vikurnar.

Mikilvægt er fyrir okkur öll að sinna hreyfingu og hvetjum við kylfinga til að mæta til okkar og viðhalda sveiflunni ásamt geðheilsu á meðan þessi bylgja gengur yfir. Taka skal tillit til 2ja metra reglunnar í umgengni við aðra gesti og starfsfólk. 

Við minnum áfram á mikilvægi þess að þvo hendur, spritta og gæta að almennu hreinlæti. 

Kveðja,
Starfsfólk Bása

Til baka í fréttalista